Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Mette og Anne Catharine Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
fimmtudagur, 25 febrúar 2010 13:48

Jæja nú er síðasti dagur Mette og Anne Catharine (25.febrúar), nemanna okkar frá Noregi.  Þær hafa verið hjá okkur undan farnar vikur og það hefur verið líflegt og skemmtilegt í kringum þær.  Þær unnu skemmtileg verkefni á deildunum og komu með nýja og ferska vinda inn í starfið okkar.

Við þökkum þeim Mette og Anne Catharine kærlega fyrir skemmtilega samveru og óskum þeim góðrar ferðar heim og góðs gengis í skólanum.  Vonandi sjáum við þær fljótt aftur.

 
Öskudagur Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 12 febrúar 2010 15:53

 

Öskudagur var haldinn hátíðlegur hér hjá okkur á Dvergasteini á miðvikudaginn.
Það var dansað og sungið í salnum áður en við slógum köttinn úr tunnunni. Að því loknu var bíó í salnum, þar sem við horfðum á Mjallhvíti og dvergana sjö. Dagurinn var í alla staði vel heppnaður og ekki hægt að túlka það öðruvísi en að allir hafi skemmt sér vel, bæði börn og fullorðnir

 
Lokað vegna skipulagsdags starfsmanna Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
fimmtudagur, 14 janúar 2010 14:34

Kæru foreldrar

Leikskólinn verður lokaður föstudaginn 5. mars frá klukkan 13:00, vegna skipulagsdags starfsmanna.

 
Heimsókn í Dómkirkjuna Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
fimmtudagur, 26 nóvember 2009 16:08

Miðvikudaginn 9. desember ætlum við að heimsækja Sr. Þorvald í Dómkirjunni og rölta um miðbæinn og skoða jólaljósin.

Við ætlum að leggja af stað um kl. 9:30 svo gott væri ef allir gætu mætt í fyrra fallinu þennan dag, ekki seinna en 9:15.

Starfsfólk Dvergasteins

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 5 af 12

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
 Leikskólinn Dvergasteinn | Seljavegi 12 | 101 Reykjavík | s: 551 6312 | Póstur | Viðburðir | Fréttir