Á morgun, 1. desember, ætlar Þórdís Arnljótsdóttir að koma til okkar, eins og venja er orðin hjá okkur í upphafi aðventunnar, með leikhúsið sitt í tösku.
Leiksýningin byrjar stundvíslega klukkan 11:00.
Á degi íslenskrar tungu þann 16.nóvember munum við halda upp á afmæli Jónasar Hallgrímssonar með tónleikum í salnum okkar. Börnin munu syngja fyrir okkur nokkur vel valin lög.
Dagskráin byrjar klukkan 15:00.
Allir velkomnir og vonumst til að sjá sem flesta.
Nú er annað árið okkar í Comeniusarverkefninu hafið.Drekinn Süsü, frá ungverjalandi kom til okkar fyrir 3 vikum síðan og börnin voru óskaplega glöð að hitta vin sinn aftur og fögnuðu honum mikið við komuna.Til að byrja með var hann í miðrýminu til að rifja upp íslenskuna sína og hitta alla vini sína aftur. Svo fór hann inn á Hulduhóla í viku og skemmti sér konunglega með yngstu börnunum og aðstoðaði mikið við aðlögun nýrra barna. Eftir það fór hann á Álfheima og átti góðar stundir með þeim og kenndi þeim heilmikið í ungversku, þau eru meira að segja farin að syngja á ungversku.Nú er hann að hefja 4 vikuna sína og mun hann eyða henni á Trölladyngju og ekki á honum nú eftir að leiðast þar, það er nokkuð víst.
Süsü hélt áfram að kenna okkur orð, að telja og syngja en nú hafa bæst skemmtilegar nýjungar við. Hann kom með myndband af ungverskum dönsum, sem við höfum horft svolítið á en leggjum ekki alveg í að læra.Svo kom hann með fallega myndasýningu frá landinu sínu, sem við horfðum á í salnum á bióskjánum okkar og svo framhald af dekasögunni um hann sem við byrjuðum á í fyrra vetur.
En í byrjun október fara Linda, Sólveig og Elín Mjöll til Ungverjalands á fund og þá mun hann fá að fljóta með þeim heim.Hann mun án efa fara heim fullur af fróðleik og skemmtilegum minningum frá Íslandi.