Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Kveðjuveisla 23. júní Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
fimmtudagur, 18 júní 2009 14:58

Á þriðjudaginn kemur ætlum við að gera okkur glaðan dag saman með tónlist í garðinum, grilli í hádeginu, bíó í salnum ofl. Með þessu móti ætlum við að kveðja alla þá sem koma til með að hætta hjá okkur í sumar eða haust. Það verður sem sagt stanslaus gleði í bænum á þriðjudaginn kemur.

 
10 ára starfsafmæli Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
þriðjudagur, 09 júní 2009 18:01

Í dag, 9. júní, var haldið upp á það að hún Doja okkar á 10 ára útskriftar- og starfsafmæli. Nú hefur hún formlega bæst í hóp mublanna á Dvergasteini.
Innilega til hamingju með þennan merka áfanga elsku Doja.

 

 
Comeniusarfélagar í heimsókn Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
miðvikudagur, 03 júní 2009 13:59


Þann 27. maí kom hópur kennara frá samstarfslöndum okkar í heimsókn og voru með okkur til 31. maí. Það komu alls þrettán kennarar frá Ungverjalandi og Belgíu (flæmska og franska hluta). Hópurinn eyddi fimmtudeginum hjá okkur á Dvergasteini, börn og fullorðnir tóku vel á móti þeim í salnum með söng. Eftir samveru á sal skoðuðu þau skólann og fylgdust með starfinu inni á deild. Eftir hádegi fórum við í heimsókn í Myndlistaskólann í Reykjavík og Vesturbæjarskóla, þar sem við fengum leiðsögn um skólana.

 

 

Á föstudaginn fengum við kynningu á leikskólasviði fyrir hádegi en gengum svo um miðbæinn, skoðuðum Ráðhús Reykjavíkur og fengum leiðsögn um Alþingishúsið og fylgdumst með umræðum af þingpöllunum.
 

 

Á laugardaginn fórum við svo í Bláa lónið og hristumst þar og skulfum í jarðskjálftanum. Það fór nú aðeins um hópinn því fæstir höfðu upplifað jarðskjálfta áður. Það var nú ekki verra að það var svo tekið viðtal við nokkra í hópnum, sem var sýnt í fréttunum um kvöldið.
 

 

Á sunnudeginum fór hópurinn svo gullna hringinn. Þau gátu varla lýst hrifningu sinni á landi og þjóð þegar við hittum þau svo um kvöldið.
 

Eftir frábæra daga með samstarfsaðilum okkar var erfitt að kveðja þennan skemmtilega og þétta hóp áður en hann fór aftur til síns heima.
 
Langamma kemur og spinnur ull Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
fimmtudagur, 14 maí 2009 15:43

Í dag 14. maí kom langamma hans Arnars á Álfheimum til okkar með rokkinn sinn. Hún kom með ull og fræddi okku mikið um það hvernig ullin var unnin í gamladaga, þegar hún var lítil stelpa í sveitinni. Hún hreinsaði ullina, kembdi hana og spann hana svo í band. Þetta var virkilega skemmtileg uppákoma og kunnum við ömmu Sillu bestu þakkir fyrir komuna.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 7 af 12

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
 Leikskólinn Dvergasteinn | Seljavegi 12 | 101 Reykjavík | s: 551 6312 | Póstur | Viðburðir | Fréttir