Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Jules og Pom Pom Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 24 apríl 2009 14:22

Skiptinemabræðurnir Jules og Pom Pom komu til okkar um miðjan apríl. Þeir voru hressir og kátir eftir ferðalagið frá Knokke-Heist í Belgíu. Þeir voru greinilega við öllu búnir því þeir komu mjög vel gallaðir af hlýjum fötum, greinilegt að þeir hafi eitthvað kynnt sér Ísland og íslenska veðráttu. Börnin eru líka mjög hrifin af þeim og passa vel upp á að þeir séu háttaðir og tannburstaðir á hverjum degi.

 

 
Trölli kominn og er að fara aftur Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 03 apríl 2009 15:04

Doja, Dóra og Sigga fóru til Ungverjalands og sóttu hann Trölla okkar. Hann kom þreyttur en glaður í hús og sagði okkur frá upplifun sinni í Ungverjalandi síðasta mánuðinn.

En þetta var nú stutt gaman því nú er hann að fara aftur á stað í ferðalag. Við kvöddum hann í samverustund í salnum í dag og pökkuðum honum niður fyrir ferðina. Hann leggur svo af stað á mánudaginn til Belgíu en nú fer hann til flæmska hluta hennar, til lítils bæjar sem heitir Knokke-Heist. Þar mun Magali taka á móti honum með börnunum í Sint-Jansschool.

Góða ferð elsku Trölli, hlökkum til að sjá þig aftur!

 
Doja, Dóra og Sigga í Ungverjalandi Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
fimmtudagur, 26 mars 2009 14:37

Á þriðjudaginn lögðu Doja, Dóra og Sigga af stað til Ungverjalands.  Þar ætla þær að funda vegna Comeniusaverkefnisins okkar.  Eftir því sem við best vitum hefur ferðalagið gengið vel en það er líka mikil vinna á þeim. Þær koma svo heim um helgina og mæta hressar á mánudaginn með hann Trölla okkar með sér. 

 
Fjölgun skipulagsdaga Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
þriðjudagur, 10 mars 2009 12:52

Skipulagsdögum í leikskólum fjölgað úr fjórum í fimm

 

Á fundi leikskólaráðs 11. febrúar síðastliðinn var samþykkt samhljóða að framvegis verði skipulagsdagar í leikskólum Reykjavíkurborgar fimm talsins í stað fjögurra. Með slíkri ráðstöfun fækkar starfsmannafundum leikskóla utan hefðbundins vinnutíma. Þrír skipulagsdagar verði á sama tíma og starfsdagar starfsfólks eða frídagar nemenda í grunnskólum en með sameiginlegum starfsdögum í skólahverfum gefst aukið svigrúm til samstarfs og samvinnu í anda nýrra laga um leik- og grunnskóla. Tveir skipulagsdagar geta ýmist verið hálfir dagar eða heilir. Miðað er við að skipulagsdagarnir dreifist jafnt á skólaárið, verði þrír á haustönn og tveir á vorönn eða öfugt.

Jafnframt voru samþykktar að nýju reglur um umsókn, innritun, gjaldtöku og innheimtu leikskóla. Reglurnar voru samþykktar í ráðinu í nóvember sl. en nú með eftirfarandi breytingum í 1. gr. Gagnkvæmur uppsagnarfrestur á dvalarsamningi er einn mánuður og skal uppsögn miðast við 1. og 15. hvers mánaðar Leikskólar eru lokaðir fimm daga á ári vegna skipulagsdaga. Þrír þeirra eru á sama tíma og starfsdagar starfsfólks eða frídagar nemenda í grunnskólum en tveir geta verið ýmist hálfir dagar eða heilir.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 8 af 12

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
 Leikskólinn Dvergasteinn | Seljavegi 12 | 101 Reykjavík | s: 551 6312 | Póstur | Viðburðir | Fréttir