Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Skemmtileg vika hjá strumpnum Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 27 febrúar 2009 13:11

Hann yfirstrumpur hefur verið þessa vikuna með Trölladyngju og skemmtir sér alveg konunglega.
Hann lenti í bolluveislu á mánudaginn og borðaði sig pakksaddan af fiskibollum og rjómabollum.
Svo belgdi hann sig út af saltkjöti og baunum á þriðjudaginn og sönglaði: ,,Saltkjöt og baunir túkall!"
Hátindur vikunnar var að sjálfsögðu þegar hann mætti sem slökkviliðsmaður á grímuballið á öskudag og vakti mikla lukku.

 
Strumpurinn er kominn Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 13 febrúar 2009 15:47

Strumpurinn er kominn í hús. Við vorum að fara að setjast niður og horfa á skuggaleikhús í tilefni vetrarhátíðar þegar pósturinn kom færandi hendi með risastóran bleikan kassa. Í honum var yfirstrumpur, sem kom alla leið frá Walloniu í Belgíu, og hann ætlar að vera með okkur næsta mánuðinn. Allir voru mjög glaðir að sjá hann og það var ekki að sjá annað en að hann væri mjög ánægður að sjá okkur. En nú fer hann bara beint í að upplifa skemmtilegt starf með okkur og hann á örugglega eftir að lenda í einhverjum ævintýrum - kannski að hann hitti Gilitrutt, hver veit?

 
Skiptinemarnir okkar á faraldsfæti aftur Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 06 febrúar 2009 15:35

Jæja nú eru skiptinemarnir okkar lagðir af stað aftur.  Trölli kvaddi okkur með viðhöfn á mánudaginn síðasta, en nú er hann á leiðnni til Ungverjalands.  Það var ekki að sjá annað en að hann væri bara spenntur að leggja af stað á heimaslóðir Süsü vinar okkar.

En það kemur líka einn skiptinemi til okkar, Yfirstrumpur sjálfur er á leiðinni frá Wallonia í Belgíu. Hann ætlar að vera hjá okku í 5 vikur og það er kominn nokkur spenningur í hópinn yfir að sjá strumpinn sjálfan í öllu sínu veldi. 

 
Ferð til Belgíu Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 30 janúar 2009 10:18

Þann 20. janúar lögðu Doja, Linda, Elín og Hanna af stað með Süsü til Belgíu, þar sem hitta átti samstarfsaðila okkar í Evrópusamstarfsverkefninu okkar, PUPPETS WITH A MISSION. Ferðin út gekk vel og Süsü svaf á sínu græna allt ferðalagið. Við hittum samstarfsaðila okkar frá Belgíu (flæmska og franska hluta) og Ungverjalandi í Brussel og áttum skemmtilegan dag saman, þar sem við skoðuðum m.a. Evrópuþingið. Svo héldum við til Walloniu þar sem við skoðuðum skólann sem hann Trölli okkar hefur dvalið í  síðustu mánuði. Það voru fagnaðarfundir þegar tekið var á móti okkur í leikfimissalnum og Trölli var þar fremstur í flokki. Hann var ósköp glaður að sjá okkur og tók okkur opnum örmum, gott ef ekki glytti í smá gleðitár á vanga. Það var auðséð að hann hafði verið í góðu yfirlæti og hann á eftir að sakna vina sinna í La Louviere.

Það voru líka fagnaðarfundir þegar Süsü hitti vinkonur sínar frá Ungverjalandi. Okkur þótti reyndar svolítið sárt að kveðja þennan litla vin okkar eftir skemmtilegan tíma með honum á Dvergasteini. En lopapeysan sem hann fékk á hjá okkur kom að góðum notum því það var ansi kalt í Belgíu.

En ferðin var í alla staði vel heppnuð, þetta var mikil vinna og við náðum að skoða ýmislegt skemmtilegt sem Wallonia getur státað sig af. Ósköp var nú gott að koma heim aftur til gullfallegu barnanna á Dvergasteini sem tóku á móti okkur á mánudaginn. Trölli var reyndar alveg útkeyrður eftir ferðalagið og svaf fram á þriðjudag. Hann kom þá og hitti vini sína og sagði frá upplifun sinni í Belgíu.
Við kveðjum hann fljótt aftur því hann er að fara í annað skiptinám til Ungverjalands á mánudaginn kemur. Nú fer hann á heimaslóðir Süsü og hann er orðinn mjög spenntur.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 9 af 12

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
 Leikskólinn Dvergasteinn | Seljavegi 12 | 101 Reykjavík | s: 551 6312 | Póstur | Viðburðir | Fréttir