Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Süsü og Trölli Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
mánudagur, 29 desember 2008 14:18

Nú fer að líða að því að Trölli okkar komi hem uppfullur af fróðleik frá Belgíu. Eftir því sem við best vitum er hann í góðu yfirlæti hjá þeim í Wallonia og hefur notið þess að eyða jólum og áramótum þar.

Að sama skapi fera að koma að því að við þurfum að kveðja hann Süsü og að hann fari aftur til Ungverjalands. Hann hefur átt viðburðaríka dvöl hérna á Dvergasteini og hann vingaðist við alla jólasveinana, þegar þeir litu við hjá okkur á ferð sinni um bæinn. Nú hefur hann lært mikið um siði og venjur okkar hér á Dvergasteini og getur kennt vinum sínum í Ungverjalandi margt skemmtilegt.
Síðustu vikur höfum við lagt mikla áherslu á Ungverjaland og Süsü með skemmtilegum samverustundum í salnum, þar sem við förum yfir nokkra skemmtilega hluti sem hann kom með frá heimalandi sínu. Við höfum skoðað myndadisk með myndum frá landinu hans ásamt upptökum frá honum og vinum hans á leikskólanum. Þau eru að kenna okkur ýmiss orð í ungversku og nú er stefnan að geta talið frá einum upp í tíu.
Það var elduð ungversk gúllassúpa og bakaðar pönnukökur með sérstakri ungverskri fyllingu.

Süsü mun svo verða samferða Lindu, Doju, Hönnu og Elínu þegar þær fara til Belgíu þann 20. janúar og fara áfram til Ungverjalands þaðan. Eins mun Trölli koma heim með þeim frá Belgíu þegar þær koma þann 25. janúar.

 
Süsü er kominn í hús Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 28 nóvember 2008 11:36

Á þriðjudaginn var fóru fulltrúar frá öllum deildum niður á Pósthús og sóttu drekann Süsü, sem var loksins kominn alla leið frá Ungverjalandi.
Ætlunin var að hafa samverustund eftir hádegi og skoða innihald pakkans en spenningurinn var svo mikill að enginn gat hugsað sér að bíða fram yfir hádegi með að svala forvitninni.
Öllum var safnað saman í salnum og pakkinn opnaður við mikla viðhöfn. Süsü var ósköp feginn að komast úr kassanum og viðra sig aðeins en hann var nú svolítið feiminn að sjá öll þessi nýju andlit að horfa á sig.
Hann var með margt spennandi með sér í pakkanum, t.d. skrautmuni frá Ungverjalandi, bol með ungverskum áletrunum, ævisögu sína og dagbók.

Við munum hafa samverustundir í salnum á föstudögum þar sem við förum yfir sögu hans og dagbókina, ásamt því að kenna honum íslensku og íslenskar hefðir.
Süsü mun fara með okkur í allar þær ferðir sem við förum í þennan mánuðinn og hann mun taka þátt í starfinu með okkur.

 
Comenius Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 21 nóvember 2008 15:07

Við höfum verið í miklu sambandi við Belgíu undan farnar vikur. Við prófuðum að tengjast og spjalla í gengum vefmyndavél og nokkur börn á Dvergasteini sungu fyrir kennara og börnin í Knokke í Belgíu. Þetta þótti okkur öllum mjög merkilegt og spennandi.

 

Nú eru Evrópuvikurnar okkar yfirstaðnar og við komumst að því að við eigum heilmikil tengsl til Evrópu.
Allir brugðust skjótt og vel við og börnin komu með myndir og hluti frá ýmsum löndum í Evrópu. Við skoðuðum saman það sem börnin komu með, ræddum um landið og tengsl þeirra við það og merktum það inn á kortið okkar með spotta.

 

Nú er Trölli farinn af stað í sína fyrstu skiptinemaferð. Í samverustund í salnum hjálpuðum við honum að pakka niður í töskuna sína og kvöddum hann vel og innilega. Nokkur börn af Álfheimum og Trölladyngju tóku það að sér að fylgja honum á pósthúsið niðri í miðbæ.

 

 

 

Við höfum líka aðeins frétt af drekanum Süsü sem kemur til okkar. Hann var víst stoppaður í tollinum og þurfti að gera grein fyrir sér og sínu þar. Þetta hafði nú ekki neina eftirmála og eftir því sem við best vitum er hann á einhverju smá flandri í póstkerfinu og við bíðum spennt eftir að fá tilkynningu um að mega sækja hann á pósthúsið.

 
Ferð starfsfólks til New York Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
miðvikudagur, 05 nóvember 2008 09:30

Það var mikill spenningur í fólki miðvikudaginn 22. október þegar rútan renndi í hlað til að sækja okkur og keyra okkur út á Keflavíkurvöll. Þessi sami hópur var orðinn ansi þreyttur þegar hann kom á Holiday Inn hótelið í New York seint um kvöldið. En ferðin var í alla staði mjög vel heppnuð og ofsalega skemmtileg. Við skiptum okkur í hópa og náðum að skoða 4 skóla, hver öðrum skemmtilegri. Við hittum einnig á Harriet Cuffaro, 80 ára gömul kona hefur helgað sig vinnu með börnum og einingakubba. Þar að auki gafst okkur svolítill tími líka til að skoða þessa stórfenglegu borg og mannlíf hennar.
Hópurinn sem sneri heim mánudaginn 27. október var álíka spenntur þegar hann kom heim og þegar hann fór út, spenntur af upplifun síðustu daga og auðvitað að koma heim líka

.

 

 

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 10 af 12

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
 Leikskólinn Dvergasteinn | Seljavegi 12 | 101 Reykjavík | s: 551 6312 | Póstur | Viðburðir | Fréttir