Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Evrópusamstarfsverkefni Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
laugardagur, 09 ágúst 2008 03:07

Í vikunni byrjuðum við formlega á Comeniusarverkefninu okkar, evrópusamstarfsverkefni með Belgíu og Ungverjalandi.  Við hófum samstarfið með tveimur Evrópuvikum, settum upp Comeniusarhorn í sameiginlega rýminu okkar í salnum.  Þessar tvær vikur munum við hafa samverustundir í salnum og skoða saman evrópukortið, fána evrópulandanna og tengsl okkar við Evrópu.
Í lokin munum við svo gera hann Trölla okkar ferðbúinn og senda hann af stað í sitt fyrsta skiptinám til Wallonia í franska hluta Belgíu. 

 
Afmælishátíð Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
fimmtudagur, 26 júní 2008 17:57

Laugardaginn 16. ágúst verður haldið upp á 10 ára afmæli leikskólans með veglegri veislu og hefst hún klukkan 11:00.
Hátíðin hefst á því að farið verður í skrúðgöngu um hverfið, hoppukastalar verða í garðinum, góðir gestir munu koma í heimsókn og auðvitað verða grillaðar pylsur.

Vonumst til að sem flestir sjái sér fært að mæta!

 
10 ára starfsafmæli Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
miðvikudagur, 25 júní 2008 18:10

Á dögunum fögnuðum við því að 5 af starfsmönnum leikskólans eiga 10 ára starfsafmæli.
Elín Mjöll, Hanna, Lilla, Sigga og Guðrún hafa unnið hér frá því að leikskólinn opnaði.

Til hamingju stelpur!

 
Kveðjuveisla Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
mánudagur, 23 júní 2008 17:07

Á föstudaginn 20. júní héldum við veislu og kvöddum alla þá sem koma til með að hætta hjá okkur í sumar og í haust.
Við vorum með tónlist í garðinum í útivistinni og söngstund úti í brekku fyrir matinn. Í hádeginu var svo pylsupartý í salnum og ís í eftirrétt. Eftir hvíldina var svo bíó í salnum þar sem við horfðum á Pétur Pan á stóru tjaldi. Rúsínan í pylsuendanum var svo súkkulaðikaka að hætti Ásdísar í kaffitímanum. Eins og gefur að skilja var þetta alveg frábær dagur og ekki spillti góða veðrið.

 
<< Upphaf < Fyrri 11 12 Næsta > Endir >>

Síða 11 af 12

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
 Leikskólinn Dvergasteinn | Seljavegi 12 | 101 Reykjavík | s: 551 6312 | Póstur | Viðburðir | Fréttir