Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Comenius Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Comeniusarverkefni Dvergasteins

Haustið 2008 byrjuðum við á Evrópusamstarfsverkefni okkar með Ungverjalandi og Belgíu (flæmska og franska hluta). 
Verkefni  þetta gengur út á að hvert land er með brúðu sem fulltrúa sinn og hún fer í skiptinám til hinna samstarfslandanna, mánuð í senn.  Brúðan heimsækir skólana og kennir börnum og fullorðnum söngva, orð og að telja á tungumáli sínu ásamt því að fræða þau um landið sitt.
Brúðan frá Íslandi er Trölli tröllastrákur og frá Ungverjalandi er drekinn Süsü, frá frönsku Belgíu kemur Strumpur og frá flæmsku Belgíu koma vinirnir Jules og Pompom.

Nú erum við að hefja annað samstarfsárið okkar og það hefur í för með sér nokkrar nýungar.  Brúðurnar hafa að auki með sér fræðslumyndband um dag í lífi barns frá sínu landi, powerpoint-sýningu um landið sitt og disk með barnasöngvum.  Með þessari viðbót er ætlunin að dýpka aðeins verkefnið og kynnast samstarfslöndum okkar aðeins betur.

Evrópusamstarf þetta byggist mikið á miklum og góðum samskiptum á milli landanna og starfsmanna skólanna. Á hvoru ári fyrir sig taka öll löndin á móti samstarfsfélögum sínum.  Veturinn 2008-2009 heimsóttum við frönsku Belgíu í janúar, Ungverjaland í mars og svo komu þau til Íslands í maí.  Þessar heimsóknir fela í sér mikil fundarhöld, endurskoðun og mat á verkefninu ásamt því að kynnast landi og þjóð lítillega.
Nú á seinna ári verkefnisins förum við í heimsókn til Ungverjalands í október, tökum á móti samstarfsfélögum okkar hér heima í mars og endum svo á því að heimsækja flæmsku Belgíu í maí á næsta ári, þar sem við munum ljúka verkefninu. 

Fram að þessu hefur verkefnið gengið mjög vel og gefið okkur mikið. Við höfum kynnst samstarfsaðilum okkar vel og börnin kunna svo sannarlega að meta skiptinemana, sem koma til okkar og blása nýjum vindum inn í skólastarfið okkar.


Hér er svo linkurinn inn á heimasíðu verkefnisins: www.puppetswithamission.eu

 

 

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
 Leikskólinn Dvergasteinn | Seljavegi 12 | 101 Reykjavík | s: 551 6312 | Póstur | Viðburðir | Fréttir