| Leikskólinn Dvergasteinn |
|
|
|
|
Velkomin í Dvergastein. Leikskólinn starfar samkv. lögum um leikskóla og Aðalnámskrá leikskóla. Sérstakar áherslur eru lagðar á mál, málörvun og skapandi starf. Unnið er út frá verkefninu Ótrúleg eru ævintýrin eftir Sigríði J. Þórisdóttur. Skólaári Dvergasteins er skipt upp í fjögur tímabil. 1. Haust/vetur, sem nær frá 15. september og til nóvemberloka. 2. Jól og jólaundirbúningur, sem hefst í aðventubyrjun. 3. Frá 15. janúar og fram á vor er unnið með þjóðsögur og ævintýri. 4. Vor/sumar, sem stendur frá 15. maí til 15. september. Lögð er áhersla á að byggja upp frjótt og skapandi umhverfi þar sem börnin fá að njóta sín, þau hafa möguleika á að læra af eigin reynslu og þar sem athafnaþörf þeirra er virkjuð. Mikið er lagt upp úr leik barna og gildi hans. Leikur er líf - leikur er nám - leikur er vinna barnsins. Við höfum samskipti, vináttu og virðingu að leiðarljósi í starfi okkar og teljum mikilvægt að skapa andrúmsloft þar sem ríkir öryggi og vellíðan. Dvergasteinn er í samstarfi við Myndlistaskólann í Reykjavík, sem hófst með þróunarverkefninu "Samstarf leikskóla og myndlistarskóla". Einnig er samstarf við skólann frá Dómkirkjunni í Reykjavík, sem er safnaðarkirkja hverfisins. Vorið 2007 fékk leikskólinn Hvatninigarverðlaun Leikskólaráðs Reykjavíkurborgar. ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |