| Foreldrafélag |
|
|
|
|
Stjórn 2010-2011
Starfsreglur
Foreldraráð Dvergasteins – lög
1. Félagið heitir Foreldraráð Dvergasteins. 2. Félagar eru foreldrar og forráðamenn barna í leikskólanum Dvergasteini. 3. Hlutverk foreldraráðs er að gefa umsagnir til leikskóla og Leikskólaráðs Reykjavíkurborgar um skólanámsskrá og aðrar áætlanir sem varða starfsemi leikskólans. Þá skal ráðið fylgjast með framkvæmd skólanámsskrár og annarra áætlana innan leikskólans og kynningu þeirra fyrir foreldrum. Foreldraráð hefur umsagnarrétt um allar meiriháttar breytingar á leikskólastarfi. 4. Foreldraráð stendur fyrir fræðslu, skemmtun og tilbreytingu fyrir börnin og foreldrana sem fellur utan ramma hins daglega leikskólastarfs. Starfsemi þessi er fjármögnuð með gjaldi sem ákveðið er á aðalfundi ár hvert og foreldrar greiða tvisvar á ári.
5. Foreldraráðið er skipað sex fulltrúum foreldra hið minnsta og einum fulltrúa starfsmanna.
6. Kosning foreldraráðs skal fara fram í september ár hvert og er kosið til eins árs í senn. Fulltrúar skipta með sér verkum og kjósa sér formann, ritara og gjaldkera.
9. Tillögur til breytinga á starfsreglum þessum verða að hafa borist stjórn skriflega ekki síðar en þremur dögum fyrir auglýstan aðalfund. Breytingar á starfsreglum ná því aðeins fram að ganga að tveir þriðju hlutar fundarmanna greiði þeim atkvæði.
10. Að öðru leyti fer um verkefni Foreldraráðs Dvergasteins samkvæmt lögum um leikskóla.
8. Boðað skal til aðalfundar foreldraráðs í september ár hvert þar sem gerð er grein fyrir störfum ráðsins og reikningum foreldrasjóðs og ákvörðun tekin um gjaldtöku næsta árs. Á þeim sama fundi er mótuð stefna næsta starfsárs og kosið í nýtt foreldraráð.
7. Foreldraráð kemur saman svo oft sem þurfa þykir.
|